Djúpir eru Íslands álar

Fra heimskringla.no
Hopp til navigering Hopp til søk
Velg språk Norrønt Islandsk Norsk Dansk Svensk Færøysk
Denne teksten finnes på følgende språk ► Islandsk.gif


Þjóðsögur og ævintýri frá Íslandi

Úr þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar


Djúpir eru Íslands álar


Sagt er, að tröllkona nokkur hafi eitt sinn ætlað að vaða til Íslands frá Norvegi. Reyndar hafði hún orðið þess áskynja, að álar væru á leiðinni út hingað, og því er sagt hún hafi sagt við aðra tröllkonu, grannkonu sína, sem vildi letja hana fararinnar: "Djúpir eru Íslands álar, en þó munu þeir væðir vera." En þó hafi hún sagt, að áll einn mjór væri í miðju hafi svo djúpur, að þar mundi kollur sinn vökna. Eftir það lagði hún af stað og kom að álnum, sem hana óaði helst við; ætlaði hún þá að ná í skip, sem þar var á siglingu, og styðjast við það yfir álinn. En hún missti skipsins og varð um leið fótaskortur, svo hún steyptist í álinn og drukknaði. Var það lík hennar, sem rak á Rauðasandi hér eitt sinn, og var það svo stórt, að ríðandi maður náði ekki með svipunni af hestbaki upp undir knésbótina kreppta, þar sem hún lá stirnuð og dauð í fjörunni.